Vefur sem vinnur
fyrir þig.

Sérsniðnar vefsíður smíðaðar í Next.js. Hraðar, leitarvélabestaðar og auðveldar í notkun. Hýsing og stýrð hýsing einnig í boði.

Við vitum hvað við erum að gera.

Skýrt ferli frá fyrsta fundi til afhendingar svo þú veist alltaf hvar verkefnið stendur.

01

Kynning og skipulag

Við hittumst, hlustum og skilgreinum markmiðin saman. Útkoman er skýr áætlun um hvað á að gera, hvenær og á hvaða verði.

02

Hönnun

Við hönnum útlit og uppbyggingu síðunnar í Figma. Þú gefur endurgjöf og við fínpússum þar til við erum sátt.

03

Þróun

Við byggjum í Next.js og React. Hraðar hleðslutímar, rétt uppbygging fyrir leitarvélar og hreinn kóði sem stenst tímans tönn.

04

Afhending og þjónusta

Við afhendum, þjálfum ef þarf og erum til staðar þegar þú þarft uppfærslur eða aðstoð. Langt samband, ekki eitt verkefni.

Allt undir einu þaki.

Hraðar hleðslutímar

Core Web Vitals í lagi og vefsíðan hleðst á millisekúndum. Hraði skiptir máli fyrir bæði notendaupplifun og leitarvélar.

Leitarvélabestun

Rétt uppbygging, lýsigögn og structured data innbyggt frá fyrsta degi. Vefsíðan þín finnst á Google.

Farsímamiðuð hönnun

Við hönnum og þróum með farsímann í huga fyrst. Vefsíðan lítur vel út og virkar vel á öllum skjám.

Sérsniðin hönnun

Engin sniðmát. Við hönnum útlit sem passar við þig, vörumerkið þitt og viðskiptavinina þína.

Auðveld efnisstjórnun

Þú þarft ekki að hafa samband við okkur til að uppfæra efni. Við setjum upp vefumsjónarkerfi þannig að þú getur gert það sjálfur.

Aðgengi og staðlar

Við byggjum samkvæmt WCAG viðmiðum þannig að vefsíðan er aðgengileg öllum og stenst alþjóðlega staðla.

Áframhaldandi þjónusta

Við erum til staðar þegar þú þarft uppfærslur, viðbætur eða aðstoð. Langt samband, ekki eitt verkefni.

Vefsíðan þín er fyrsta kynning á fyrirtækinu þínu.

Vefsíðugerð felur í sér hönnun og þróun á vefsíðu sem hentar fyrirtæki þínu, vörumerkinu þínu og markmiðum þínum. Góð vefsíða er ekki bara falleg. Hún er hröð, auðveld í notkun og uppbygging hennar hjálpar leitarvélum að finna hana.

Við vinnum í Next.js, einni öflugustu tækninni til vefsíðugerðar. Það þýðir síður sem hlaðast á millisekúndum, rétta uppbyggingu fyrir leitarvélar og framúrskarandi notendaupplifun á öllum skjám og tækjum.

Í stað þess að nota sniðmát hönnum við vefsíðuna þína frá grunni. Þú færð sérsniðna hönnun, kóðagrunn sem þú átt sjálfur og áframhaldandi þjónustu frá íslenska teyminu okkar.

Ekki allar vefsíður eru jafnar.

Tilbúin vefsíðukerfi eru þægileg í byrjun en takmarkanir þeirra koma í ljós þegar þú vilt vaxa. Hér er munurinn á mannamáli.

Sérsniðin vefsíða

Mælt með

Vefsíða smíðuð frá grunni í Next.js. Þú átt kóðann, hönnunin er þín og ekkert er fast í sniðmáti sem einhver annar ákvað.

  • Síðan hleðst á millisekúndum því við skrifum kóðann sjálf og skerum burt allt óþarfa
  • Útlit, litir og uppbygging eru hönnuð eftir vörumerkinu þínu og engu öðru
  • Structured data, lýsigögn og rétt uppbygging eru innbyggð frá fyrsta degi
  • Þú átt kóðann og getur flutt vefsíðuna hvert sem er hvenær sem er
  • Hægt er að bæta við hvaða virkni sem er þegar reksturinn kallar á það
  • Íslenskt teymi sér um uppfærslur, viðbætur og aðstoð eftir afhendingu

Sérsniðin vefsíða kostar meira í byrjun en hún vex með rekstrinum og þú ert aldrei fastur í kerfi sem einhver annar á. Við mælum með henni þegar vefsíðan á að skila þér viðskiptum.

Vefsíðukerfi

Wix, Squarespace og sambærileg kerfi þar sem þú dregur einingar inn í tilbúið sniðmát og borgar mánaðargjald fyrir aðganginn.

  • Sniðmátin bera með sér þungan kóða sem hægir á síðunni og lækkar einkunn í Core Web Vitals
  • Þú velur úr tilbúnum sniðmátum og útkoman verður oft keimlík mörgum öðrum vefsíðum
  • Grunnstillingar fylgja með en tæknilega útfærslan er utan þinna yfirráða
  • Vefsíðan býr inni í kerfinu og fylgir ekki með ef þú vilt færa þig annað
  • Virknin takmarkast við þær viðbætur sem kerfið býður upp á
  • Aðstoð fæst á ensku í gegnum spjallglugga og staðlaðar hjálparsíður

Slíkt kerfi getur alveg dugað fyrir einfalda kynningarsíðu sem þarf að fara í loftið strax. Um leið og þú vilt sérsniðna virkni, betri afköst eða eigin gögn ferðu að rekast á veggi.

Ekki viss hvað hentar þér? Við förum yfir markmiðin þín og segjum hreint út hvað þú þarft.

Fá ráðgjöf

Við látum verkefnin okkar tala.

Við svörum, þú byrjar.

6 vikurMeðalafhendingartímifrá kynningarfundi
FastVerðgefið upp fyrirfram
FaglegÞjónustaíslenskt fagfólk
100%Íslensk vinnaunnið hér heima

Við erum tilbúin að hlusta.

Segðu okkur frá verkefninu þínu og við svörum þér með föstu tilboði.

Fá tilboð